-
Ökukennarinn
LESA MEIRAHafsteinn leggur áherslu á rólega og uppbyggilega kennslu þar sem þú byggir upp sjálfstraust og færni á eigin hraða.
Markmiðið er að þú verðir örugg/ur í akstri - ekki bara að ná prófinu. -
Ökukennslan
LESA MEIRAÖkukennsla skiptist í verklegt og bóklegt nám. Verklegir tímar eru að lágmarki 15 og Ökuskólarnir eru þrír talsins.
Þegar þú hefur ökunámið hjá okkur leiðbeinum við þér í gegnum allt ferlið. -
Hvenær má byrja?
LESA MEIRAÞað eru margir sem velta fyrir sér hvar eigi að byrja þegar líða tekur að ökunámi.
Ökunámið getur hafist á 16 ára afmælisdeginum sem skiptist í verklegt og bóklegt nám.
Ökukennsla
Skipulagt ökunám frá fyrsta tíma til prófs - ég sé um ökutímana en leiðbeini þér alla leið!
- að lágmarki 15 ökutímar
- Ökuskóli 1
- Æfingaakstur
- Ökuskóli 2
- Ökuskóli 3
- Undirbúningur fyrir próf
- Prófakstur
Akstursmat
Þegar einstaklingur fær bílpróf í fyrsta sinn fær sá hinn sami bráðabirgðaskírteini. Bráðabirgðaskírteinið gildir í 1-3 ár. Að þeim tíma loknum má sækja um fullnaðarskírteini.
Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf að fara í akstursmat. Akstursmatið má fara í hjá hvaða ökukennara sem er.
Kerrupróf - BE réttindi
Kerruprófið eða BE réttindi veitir þér ökuréttindi til þess að keyra bifreið sem tilheyrir flokki B (almenn ökuréttindi) með hvers kyns eftirvagn sem er allt að 3.500 kg að heildarþyngd.
- 4 verklegir ökutímar
- Stutt bóklegt netnámskeið
- Verklegt próf
Algengar spurningar
Hvenær má byrja í ökukennslu?
Þegar þú ert orðinn 16 ára má hefja ökunám.
1. Velja ökukennara
2. Sækja um námsheimild á island.is - athugaðu að þú þarft að vera með Stafræn skilríki til þess.
3. Skila inn passamynd á skrifstofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin í hús er komið að fyrsta ökutímanum, ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf ég að fara í marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn.
Lesa meira um ökunám á Íslandi
Hvernig bóka ég tíma?
Þegar þú kaupir tíma færðu sendan tölvupóst með staðfestingu á tímanum, Hafsteinn verður svo í sambandi við þig til þess að finna tíma sem hentar þér.
Ef þú ert að bóka fyrsta tímann þinn hjá ÖkuEyland er gott að senda fyrst póst svo við getum komið þér fyrir í námið miðað við þín tímamarkmið.
Er þetta viðurkennt nám?
Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.
Get ég tekið bóklegt nám hja ykkur?
Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við erum í góðu samstarfi við Netökuskólann og setjum bóklega hlutan inn í námsáætlunina þína.
Get ég dreift greiðslunum?
Já, þú greiðir fyrir hvern tíma fyrir sig við bókun en við bjóðum upp á greiðslur með millifærslu eða korti.